Alþingiskosningar 1983
Í mars 1983 samþykkti Alþingi frumvarp til stjórnarskipunarlaga sem fól í sér fjölgun þingmanna úr 60 í 63 og lækkun á kosningaaldri úr 20 árum í 18. Þá var lögræði afnumið sem skilyrði fyrir kosningarrétti og einnig krafa um óflekkað mannorð. Þessar breytingar höfðu fyrst áhrif í þingkosningum árið 1987 eftir að Alþingi hafði fjallað um stjórnarskrárbreytinguna öðru sinni og samþykkt hana.
Þing var rofið 23. apríl og kosningar til Alþingis fóru fram þann dag. Með lögum nr. 90/1981, um breytingar á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 52/1959, komst á sú skipan að alþingiskosningar skyldu fara fram síðasta laugardag í júní en áður hafði síðasti sunnudagur í júní verið kjördagur.
Alls lögðu átta stjórnmálasamtök fram framboðslista við kosningarnar. Fimm þeirra buðu fram í öllum kjördæmum: Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur, Bandalag jafnaðarmanna, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur.
Samtök um kvennalista buðu fram í Reykjavíkurkjördæmi, Reykjaneskjördæmi og Norðurlandskjördæmi eystra.
Hvorki sérframboð framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi vestra né sérframboð sjálfstæðra í Vestfjarðakjördæmi fékk fulltrúa kjörinn á þing.
Um kosningarnar | ||||
Kjördagur | 23. apríl 1983 | |||
Mannfjöldi | 235.537 | |||
Kjósendur á kjörskrá | 150.977 | |||
Hlutfall kosningarbærra af heildarmannfjölda | 63,8% | |||
Greidd atkvæði | 133.304 | |||
Kosningaþátttaka | 88,3% | |||
Hlutfall kjósenda af heildarmannfjölda | 56,6% | |||
Kosningaþátttaka karla | 89,4% | |||
Kosningaþátttaka kvenna | 87,1% | |||
Kjördæmakjörnir þingmenn | 49 | |||
Jöfnunarþingmenn | 11 | |||
Heildarfjöldi þingmanna | 60 | |||
Kosningaúrslit | ||||
Gild atkvæði | 129.962 | |||
Sjálfstæðisflokkur | 38,7% | 23 þingmenn | ||
Framsóknarflokkur | 18,5% | 14 þingmenn | ||
Alþýðubandalag | 17,3% | 10 þingmenn | ||
Alþýðuflokkur | 11,7% | 6 þingmenn | ||
Bandalag jafnaðarmanna | 7,3% | 4 þingmenn | ||
Samtök um kvennalista | 5,5% | 3 þingmenn | ||
Sérframboð framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi vestra | 0,5% | |||
Utan flokka, sérframboð sjálfstæðra í Vestfjarðakjördæmi | 0,5% | |||
Jöfnunarþingmenn | ||||
Alþýðuflokkur | 3 | |||
Bandalag jafnaðarmanna | 3 | |||
Samtök um kvennalista | 2 | |||
Sjálfstæðisflokkur | 2 | |||
Alþýðubandalag | 1 |
Kjördæmi og þingmenn 1983 | |
Reykjavíkurkjördæmi | 16 þingmenn |
Reykjaneskjördæmi | 9 þingmenn |
Vesturlandskjördæmi | 6 þingmenn |
Vestfjarðakjördæmi | 5 þingmenn |
Norðurlandskjördæmi vestra | 5 þingmenn |
Norðurlandskjördæmi eystra | 7 þingmenn |
Austurlandskjördæmi | 6 þingmenn |
Suðurlandskjördæmi | 6 þingmenn |
Þingmenn að loknum alþingiskosningum 23. apríl 1983 | |
Reykjavíkurkjördæmi | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Albert Guðmundsson | Sjálfstæðisflokkur |
2. Friðrik Sophusson | Sjálfstæðisflokkur |
3. Svavar Gestsson | Alþýðubandalag |
4. Birgir Ísleifur Gunnarsson | Sjálfstæðisflokkur |
5. Jón Baldvin Hannibalsson | Alþýðuflokkur |
6. Ellert B. Schram | Sjálfstæðisflokkur |
7. Guðmundur J. Guðmundsson | Alþýðubandalag |
8. Vilmundur Gylfason | Bandalag jafnaðarmanna |
9. Ólafur Jóhannesson | Framsóknarflokkur |
10. Ragnhildur Helgadóttir | Sjálfstæðisflokkur |
11. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir | Samtök um kvennalista |
12. Pétur Sigurðsson | Sjálfstæðisflokkur |
Jöfnunarþingmenn | |
13. Kristín S. Kvaran | Bandalag jafnaðarmanna |
14. Jóhanna Sigurðardóttir | Alþýðuflokkur |
15. Guðrún Agnarsdóttir | Samtök um kvennalista |
16. Guðrún Helgadóttir | Alþýðubandalag |
Reykjaneskjördæmi | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Matthías Á. Mathiesen | Sjálfstæðisflokkur |
2. Gunnar G. Schram | Sjálfstæðisflokkur |
3. Kjartan Jóhannsson | Alþýðuflokkur |
4. Salome Þorkelsdóttir | Sjálfstæðisflokkur |
5. Geir Gunnarsson | Alþýðubandalag |
Jöfnunarþingmenn | |
6. Guðmundur Einarsson | Bandalag jafnaðarmanna |
7. Karl Steinar Guðnason | Alþýðuflokkur |
8. Kristín Halldórsdóttir | Samtök um kvennalista |
9. Ólafur G. Einarsson | Sjálfstæðisflokkur |
Vesturlandskjördæmi | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Friðjón Þórðarson | Sjálfstæðisflokkur |
2. Alexander Stefánsson | Framsóknarflokkur |
3. Valdimar Indriðason | Sjálfstæðisflokkur |
4. Skúli Alexandersson | Alþýðubandalag |
5. Davíð Aðalsteinsson | Framsóknarflokkur |
Jöfnunarþingmaður | |
6. Eiður Guðnason | Alþýðuflokkur |
Vestfjarðakjördæmi | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Matthías Bjarnason | Sjálfstæðisflokkur |
2. Steingrímur Hermannsson | Framsóknarflokkur |
3. Karvel Pálmason | Alþýðuflokkur |
4. Þorvaldur Garðar Kristjánsson | Sjálfstæðisflokkur |
5. Ólafur Þ. Þórðarson | Framsóknarflokkur |
Norðurlandskjördæmi vestra | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Pálmi Jónsson | Sjálfstæðisflokkur |
2. Páll Pétursson | Framsóknarflokkur |
3. Ragnar Arnalds | Alþýðubandalag |
4. Eyjólfur Konráð Jónsson | Sjálfstæðisflokkur |
5. Stefán Guðmundsson | Framsóknarflokkur |
Norðurlandskjördæmi eystra | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Ingvar Gíslason | Framsóknarflokkur |
2. Lárus Jónsson | Sjálfstæðisflokkur |
3. Stefán Valgeirsson | Framsóknarflokkur |
4. Steingrímur J. Sigfússon | Alþýðubandalag |
5. Halldór Blöndal | Sjálfstæðisflokkur |
6. Guðmundur Bjarnason | Framsóknarflokkur |
Jöfnunarþingmaður | |
7. Kolbrún Jónsdóttir | Bandalag jafnaðarmanna |
Austurlandskjördæmi | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Halldór Ásgrímsson | Framsóknarflokkur |
2. Helgi Seljan | Alþýðubandalag |
3. Sverrir Hermannsson | Sjálfstæðisflokkur |
4. Tómas Árnason | Framsóknarflokkur |
5. Hjörleifur Guttormsson | Alþýðubandalag |
Jöfnunarþingmaður | |
6. Egill Jónsson | Sjálfstæðisflokkur |
Suðurlandskjördæmi | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | |
1. Þorsteinn Pálsson | Sjálfstæðisflokkur |
2. Þórarinn Sigurjónsson | Framsóknarflokkur |
3. Árni Johnsen | Sjálfstæðisflokkur |
4. Garðar Sigurðsson | Alþýðubandalag |
5. Jón Helgason | Framsóknarflokkur |
6. Eggert Haukdal | Sjálfstæðisflokkur |